Fylgi Samfylkingar ekki minna frá kosningum 30. júní 2006 07:30
Samfylking tapar miklu fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 24,2 prósent segjast myndu kjósa flokkinn ef boðað yrði til alþingiskosninga nú og hefur fylgið ekki mælst svo lítið frá síðustu alþingiskosningum þegar flokkurinn hlaut 33,7 prósent atkvæða. Þar til nú var minnsta fylgi flokksins í könnunum Fréttablaðsins í október 2003 þegar 28,4 prósent sögðust myndu kjósa flokkinn. Í síðustu könnun blaðsins í febrúar á þessu ári sögðust 34,4 prósent myndu kjósa Samfylkingu. Mestu fylgi tapar flokkurinn frá síðustu könnun á landsbyggðinni eða rúm 13 prósentustig. Í síðustu könnun sögðust 30,9 prósent íbúa utan höfuðborgarsvæðisins myndu kjósa Samfylkingu en nú eru það 21,6 prósent. Þá hefur fylgi flokksins dregist saman á höfuðborgarsvæðinu um rétt rúm átta prósentustig, en nú segjast 26 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu myndu kjósa Samfylkinguna. Fylgi meðal karla hefur minnkað um rúm ellefu prósentustig; er nú 19,7 prósent en var 30,9 prósent í könnun blaðsins í febrúar. Þá segjast 29,1 prósent kvenna myndu kjósa flokkinn sem er tæplega tíu prósentustigum minna en í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr með mesta fylgið og segjast 42,5 prósent myndu kjósa flokkinn yrði boðað til kosninga nú. Það eru örlítið færri en í síðustu könnun þegar 44,3 prósent sögðust styðja flokkinn. Helstu breytingarnar á fylgi Sjálfstæðisflokksins nú miðað við síðustu könnun er að heldur færri karlar segjast nú myndu kjósa flokkinn. Nú segjast 42,4 prósent karla styðja Sjálfstæðisflokkinn, sem er tæplega fimm prósentustigum minna en í síðustu könnun. Þá hefur fylgi meðal kvenna aukust um rétt rúmlega tvö prósentustig og segjast nú 42,6 prósent kvenna myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Vinstri græn bæta nokkuð við sig frá síðustu könnun og segjast nú 14,8 prósent styðja flokkinn. Það er fimm prósentustigum meira en í könnun blaðsins í febrúar. Það verður þó að hafa í huga að fylgi vinstri grænna í febrúarkönnun blaðsins var versta útkoma flokksins síðan í október 2003. Mest bæta vinstri græn við sig fylgi meðal karla en nú segjast 17,1 prósent karla myndu kjósa flokkinn, sem er tæplega átta prósentustigum meira en í síðustu könnun. Þá segjast 12,4 prósent kvenna myndu kjósa flokkinn. Fylgi flokksins eykst meira á höfuðborgarsvæðinu en utan þess. Nú segjast 14,7 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu myndu kjósa vinstri græn, í stað 8,7 prósenta í síðustu könnun. Þá segjast 14,9 prósent íbúa utan höfuðborgarsvæðisins myndu kjósa listann í stað 11,7 prósenta. Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi frá síðustu könnun og mælist nú með 10,6 prósent og hefur flokkurinn ekki mælst með meira en tíu prósenta fylgi í könnunum Fréttablaðsins síðan í nóvember 2004, þegar 12,3 prósent sögðust myndu kjósa flokkinn. Fylgi Framsóknarflokks eykst mest á landsbyggðinni en í síðustu könnun sögðust tíu prósent íbúa utan höfuðborgarsvæðis myndu kjósa flokkinn, en nú er hlutfallið 15,9 prósent. Þá eru örlítið fleiri á höfuðborgarsvæðinu sem segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn, eða 7,1 prósent, en var 5,4 prósent í síðustu könnun. Líkt og áður mælist Frjálslyndi flokkurinn með minnsta fylgið, 6,2 prósent en fylgi flokksins eykst hlutfallslega mest milli kannana. Í síðustu könnun sögðust 3,5 prósent myndu kjósa Frjálslynda flokkinn. Mest eykst fylgi flokksins á landsbyggðinni, en í síðustu könnun sögðust 2,8 prósent íbúa utan höfuðborgarsvæðis myndu kjósa flokkinn. Það hlutfall hefur aukist um 4,9 prósentustig og segjast nú 7,7 prósent íbúa landsbyggðarinnar styðja Frjálslynda flokkinn, en 5,1 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins. Hringt var í átta hundruð kjósendur miðvikudaginn 28. júní og skiptust svarendur jafnt milli kynja og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað yrði til kosninga nú? 65 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar.
Innlent Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Fleiri fréttir Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna reyks „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Sjá meira