Innlent

Lykillinn skilinn eftir í bílnum

Héraðsdómur Norðurlands vestra vísaði í fyrradag frá dómi máli konu á hendur eiganda bifreiðaverkstæðis. Konan sakaði eigandann um að bera ábyrgð á því að bíl hennar var stolið fyrir framan verkstæðið eftir að starfsmaður verkstæðisins skildi bílinn eftir þar með lykilinn í svissinum.

Eigandi verkstæðisins sagði að eiginmaður konunnar hefði sagst myndu koma um kvöldið og sækja bílinn og að í slíkum tilvikum væri eðlilegt að skilja bílinn eftir með lykilinn í honum. Þetta þótti ekki sannað og því taldist eigandinn ábyrgur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×