Kerfi sem kannski aldrei verður notað 29. júní 2006 08:00
Borgarráð samþykkti 20. júní 2002 að innleiða svokölluð Smartkort hjá Reykjavíkurborg. Í kjölfar samþykktarinnar var undirritaður samningur vorið 2003, á milli Reykjavíkurborgar, Strætó bs. og Smartkorta hf., um þróun Smartkortakerfis. Enn bólar ekkert á kerfinu í almennri notkun þremur árum síðar, en heildarkostnaður við þróun kortakerfisins var kominn upp í rúmar 109 milljónir króna um síðustu áramót. Áætlað er að kostnaðurinn verði orðinn um hundrað og þrjátíu milljónir króna í lok þessa árs. Hingað til hefur Reykjavíkurborg borið helming kostnaðarins við þróunarverkefnið, eða rúmar 54 milljónir króna. Þar af hafa 85 prósent af hlut Reykjavíkurborgar komið frá Íþrótta- og tómstundasviði, sem sinnir æskulýðsmálum borgarinnar. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir framtíð verkefnisins óljósa. Ég vil að það verði farið yfir stöðuna eins og hún er núna, hvað hefur áunnist og í hvað peningarnir hafa farið og hversu langt við eigum í land að þessi kort skili borgarbúum einhverjum ávinningi, segir Gísli Marteinn. Ef það er mjög langt sem verkefnið á í land og á að kosta margar milljónir í viðbót, finnst mér að við verðum að skoða málið alveg frá grunni. Smartkort er ný tegund greiðslukorta sem eru án segulrandar, en innihalda þess í stað örgjörva sem geymir upplýsingar. Kortin átti að nota til að greiða fargjald í strætó og fyrir aðgang að sundstöðum borgarinnar. Þar til gerður búnaður var keyptur og prófaður í einhverjum tilfellum hjá sundstöðum borgarinnar. Strætó bs. hefur, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar framkvæmdastjóra, lokið við uppsetningu á kortabúnaði í vögnum sínum. Fjárfesting Strætó bs. í búnaðinum er um hundrað milljónir króna, að sögn Eiríks, og því er fyrirtækið búið að fjárfesta í verkefninu fyrir liðlega 150 milljónir króna. Eiríkur segir að kostnaður hafi verið töluvert meiri en reiknað var með í upphafi. Björn Hermannsson hjá Gagnaprisma, sem hefur haft verkefnastjórn yfir verkefninu undanfarið, segir verkefnið í eðlilegum farvegi. Þetta er búið að vera þróunarverkefni og hefur tekið sinn tíma, enda um nýjung að ræða. Hann segist vongóður um að kerfið verði tekið í notkun í haust í áföngum.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira