Skyrið selt beggja vegna Atlantsála 26. ágúst 2006 19:05
Mikil eftirspurn er eftir íslenskum mjólkurafurðum í Bandaríkjunum og seljast nú um 1,2 tonn af skyri þar í hverri viku á ríflega tvöfalt hærra verði en hér heima. Hinum megin Atlantsála hefur Mjólkursamsalan svo selt sérleyfi á framleiðslu skyrs bæði í Danmörku og Skotlandi og hyggur á frekari landvinninga með skyrið. Undanfarin ár hefur verið unnið að átaksverkefni um markaðssetningu íslenskra afurða í útlöndum undir nafninu Áform. Það hefur meðal annars þróast út í náið samstarf milli mjólkurvöruframleiðenda hér á landi og verslanakeðjunnar Whole Foods Market í Bandaríkjunum. Hafa íslensk matvæli verið seld í 30 verslanir Whole Foods á austurströnd Bandaríkjanna. Sala á skyri hófst í september í fyrra og hefur vaxið hröðum skrefum síðan þá að sögn Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra Áforma. Byrjað hafi verið á því að flytja um 300 lítra af skyri út á viku en nú séu um 1,2 tonn flutt út í viku hverri. Baldvin segir enn fremur að skyrdósin sé seld á um þrjá dollara, eða 210 krónur í Bandaríkjunum, en til samanburðar kostar dósin um 80 krónur hér á landi. Við framleiðslu skyrs er fellur til fita úr mjólkinni sem notuð er í smjör. Gerðir hafa verið samningar við Whole Foods um að þeir kaupi og verða 140 tonn af smjöri seld til verslanakeðjunnar á þessu ári. En það er ekki bara í Bandaríkjunum sem skyr hefur verið selt því MS hefur í gegnum fyrirtækið Agrice selt sérleyfi á framleiðslu skyrs til Danmerkur og hefur sala á því gengið vel að sögn Guðbrands Sigurðssonar, forstjóra MS. Hann bætir við að sams konar samningur hafi verið gerður við mjólkursamsölu í Skotlandi sem sjái fyrir sér að selja skyrið í London. Þá sé fleiri slíkir samningar í burðarliðnum. Til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir íslenskum mjólkurafurðum þarf að auka framleiðslu á mjólk en hún nemur nú um 115 milljónum lítra. Þar af fara nú um tvær milljónir lítra í vörur fyrir erlenda markaði en Guðbrandur segir að stefnt sé að því að þrefalda eða fjórfalda þann lítrafjölda á næstu árum.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Sjá meira