Stjórnmálamenn tjá sig oftast um Baug 4. desember 2005 08:15 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er einn þeirra sem oftast hafa tjáð sig um málefni Baugs samkvæmt skýrslunni.
Stjórnmálamenn eru áberandi flestir af þeim sem tjá sig um Baugsmálið í umræðuþáttum ljósvakamiðlanna, eða 35 prósent. Þeim næstir eru einstaklingar tengdir starfi við fjölmiðla, en þeir koma fram í 22 prósentum umræðuþátta. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslunni Baugsmálið í fjölmiðlum, sem Fjölmiðlavaktin ehf. gaf út í byrjun vikunnar. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er meðal þeirra sem oftast tjá sig um málið í fréttum. Hann skipar sér þar í hóp með einstaklingum sem annaðhvort eru málsaðilar eða vinna við málflutninginn. Björn kemur þarna fast á hæla Gests Jónssonar lögmanns, Jóns H. B. Snorrasonar saksóknara og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, framkvæmdastjóra Baugs. Samhliða þessari greiningu lét Fjölmiðlavaktin IMG Gallup gera símakönnun þar sem spurt var hvað hafi haft mest áhrif á skoðanir fólks á Baugsmálinu. Þar kemur í ljós að tæp 17 prósent almennings mótuðu skoðanir sínar út frá eigin stjórnmálaskoðunum. Skoðuð var öll fjölmiðlaumfjöllun um Baugsmálið á tímabilinu 10. ágúst til 18. október. Skoðaðar voru fréttir, aðsendar greinar, umræðuþættir og hvert það sem fallið gat undir hið svokallaða Baugsmál, hvort sem um var að ræða lögreglurannsókn, birtingu ákæra eða aðkomu stjórnmála- og fjölmiðlafólks. "Það er athyglisvert í þessari greiningu að þegar kemur að prentmiðlum þá er hlutfallslega mun meira af aðsendu efni og skoðunum en við eigum að venjast í greiningum á umfjöllun um til dæmis fjármálamarkað eða önnur viðfangsefni," segir Magnús Heimisson, sérfræðingur hjá Fjölmiðlavaktinni. Hann bendir á að fréttir og fréttaskýringar hafi verið 58 prósent af blaðaefni um Baugsmálið, annað efni hafi verið 42 prósent. "Við eigum því að venjast að önnur umfjöllun en fréttir sé einungis um fimmtungur," segir Magnús.
Innlent Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Fleiri fréttir Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent