Hafa borgað 25 milljónir til Vals 8. janúar 2005 00:01
Hlutafélagið Valsmenn hf., sem festi kaup á byggingarétti á svæði Vals að Hlíðarenda fyrir 856 milljónir fyrir skömmu, er fimm ára gamalt. Félagið samanstendur af 438 hluthöfum, sem allir eru Valsmenn, og er eigið fé félagsins um 50 milljónir króna. Brynjar Harðarson, stjórnarformaður félagsins, sagði í samtali við Fréttablaðið að félagið hefði komið að margvíslegri fjárfestingastarfsemi síðan það var stofnað. "Markmið félagsins er að styðja við bakið á Knattspyrnufélaginu Val og það hefur gengið vel hjá okkur. Það er samt rétt að taka það fram að við komum á engan hátt nálægt rekstri deidlanna hjá Val. Ef það væri raunin þá væri hlutafélagið væntanlega farið á hausinn," sagði Brynjar. Hann sagði aðspurður að hlutafélagið væri búið að láta íþróttafélaginu um 25 milljónir í té á undanförnum fimm árum. "Ég er ekki með skiptinguna á milli í deilda í kollinum en fótboltinn hefur fengið mest og síðan handboltinn þar á eftir," sagði Brynjar sem sagðist allt eins búast við því að hlutafélagið myndi á einhvern hátt rétta hjálparhönd í þeirri viðleitni Valsmanna við að festa knattspyrnulið sitt í sessi í Landsbankadeild karla en félagið vann sér þátttökurétt í deildinni síðastliðið haust og hefur þeyst á milli deilda undanfarin ár. Meðal þekktra manna í hluthafahópi Valsmanna hf. eru lögfræðingurinn og fyrrum atvinnumaðurinn Guðni Bergsson, skartgripasalinn Sævar Jónsson, rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson, handboltakapparnir Geir Sveinsson og Valdimar Grímsson og fjölmiðlamaðurinn Hermann Gunnarsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Í beinni: Ísland - Noregur | Stelpurnar okkar spila upp á stoltið Fótbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Sex hafa ekkert spilað á EM Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum að gera eitthvað rétt“ Þrjár breytingar: Katla fær stórt tækifæri í lokaleik Íslands á EM Í beinni: Malisheva - Víkingur | Stefnan aftur sett á Sambandsdeildina Anisimova og Swiatek í úrslit í fyrsta sinn Í beinni: Ísland - Noregur | Stelpurnar okkar spila upp á stoltið Birkir Hrafn í NBA akademíunni Myndaveisla: Íslensk yfirtaka í Thun og vonast eftir fyrsta sigrinum Á góðum stað fyrir mikil átök Fjórir eru tveimur leikjum frá því að vinna sjö titla á einu ári Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ EM í dag: Hungur í sigur, þreytandi vörður og næstum stærsta skúbb mótsins „Miklu skemmtilegra að vera í þessari baráttu“ Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Arsenal eflir miðjuna enn frekar Sex hafa ekkert spilað á EM Sjáðu strákana á N1 mótinu sýna snilli sína „Þetta gerist rosa hratt“ Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ajax riftir samningi Jordans Henderson Síðasti séns á að vinna milljónir Missum Hondúras upp fyrir okkur en höldum sama sæti á FIFA listanum Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sengun í fantaformi í sumarfríinu Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Dagskráin í dag: Íslenskir Evrópuleikir Sjá meira