Gamlir Valsarar borga brúsann 8. janúar 2005 00:01
Hlutafélagið Valsmenn hf. mun, ef ekkert óvænt kemur upp á, festa kaup á byggingarétti á lóð Knattspyrnufélagsins Vals á Hlíðarenda fyrir 856 milljónir en samkvæmt deiliskipulagi er ráðgert að byggja 170 íbúðir auk atvinnuhúsnæðis þar á næstu árum. Hluthafafundur félagsins á reyndar eftir að samþykkja kaupin en ekki er talið líklegt að hluthafarnir séu þessu mótfallnir. Það eina sem gæti haft áhrif á kaupin er að ákveðið svæði sem byggingarréttur er á, er á helgunarsvæði flugvallarins í Vatnsmýrinni, nánar tiltekið flugbrautar 06-24 og því er óheimilt að byggja þar eins og stendur. Helguninni mun hins vegar að öllum líkindum verða aflétt á næstunni. Grímur Sæmundsen, formaður Vals, sagði í samtali við Fréttablaðið að með þessari sölu á byggingaréttinum væri fjárhagslegur grundvöllur fyrir uppbyggingu nýrra og glæsilegra mannvirkja á svæði Vals tryggður auk þess sem allar skuldir félagsins yrðu greiddar upp en þær eru um 260 milljónir . "Það er auðvitað gleðilegt að þetta félag, sem er eingöngu skipað Valsmönnum, skuli sjá sér hag í því að festa kaup á þessum byggingarétt. Það skipti okkur gríðarlegu máli að selja þennan byggingarétt enda fjarmögnum við stærstan hluta mannvirkjanna með því," sagði Grímur. Hann sagði aðspurður að kostnaður við byggingu nýs félagsheimilis, íþróttahúss, stúku og knattspyrnuvallar væri rúmlega milljarður. "Þessi framkvæmd er fjármögnuð með framlögum frá Reykjavíkurborg og síðan sölu á byggingaréttinum," sagði Grímur en framlög Reykjavíkurborgar til Vals næstu þrjú árin eru samanlagt 515 milljónir. Grímur sagði að stefnan væri að bjóða út framkvæmdir Vals nú í febrúar og að hann ætti ekki von á öðru en að þessi áfangi, sem sést á myndinni hér til hliðar, verði klár haustið 2006. Aðspurður um hvort nýr stórveldistími væri að renna upp hjá Val sagði Grímur að allt stórveldistal væri út í hött. "Við erum félag með sterka hefð og stefnan hefur alltaf að geta boðið upp á öflugt unglinga- og æskulýðsstarf í bland við afreksstefnu. Við erum afskaplega ánægðir með okkar svæði sem verður án nokkurs vafa það glæsilegasta á landinu." Brynjar Harðarson, fasteignasali og stjórnarformaður Valsmanna hf., sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann liti á þessi kaup hlutafélagsins á byggingaréttinum sem tækifæri fyrir sanna Valsmenn til að þróa og hafa áhrif á það hvernig Valssvæðið liti út í framtíðinni. Brynjar sagði jafnframt að Valsmenn hf myndu selja þetta á ákveðnu stigi en ekki hefði enn verið tekið ákvörðun um hvenær það yrði. "Það er gífurlega jákvætt fyrir félagið að allur byggingarétturinn sé á einni hendi. Við hyggjumst þróa þetta áfram með þeim arkitektum sem hafa teiknað nýju íþróttamannvirkin þannig að hverfið fær heilstæðan svip," sagði Brynjar. Hluthafafundur Valsmanna hf. hefur ekki enn samþykkt þetta en Brynjar sagðist ekki búast við öðru en kaupin yrðu samþykkt. Hluti af lóðunum verður byggingarhæfur í september á þessu ári en Brynjar sagðist ekki vera viss um að byrjað yrði strax á byggja. Byggingarétturinn, sem Valsmenn hf. hafa fest kaup á, nær yfir 25 þúsund fermetra svæði. Þar af er gert ráð fyrir 169 íbúðum á 18 þúsund fermetra svæði og sjö þúsund fermetra atvinnuhúsnæði. Brynjar sagði eigið fé félagsins vera um 50 milljónir en allt benti til þess að hlutafé yrði aukið upp í 100 milljónir kjölfar þessara viðskipta sem hlutafélgið vonast til að græða sem mest á. "Það er auðvitað alveg ljóst að við erum ekki að leika okkur. Þetta eru viðskipti og okkar kappsmál er að byggja upp glæsilegt svæði fyrir Valsmenn, bæði hvað varðar íþróttamannvirki og íbúðarhúsnæði," sagði Brynjar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Fleiri fréttir Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Sjá meira