Borgvardt bestur 28. september 2005 00:01
Daninn Allan Borgvardt fór hreinlega á kostum með FH í sumar. Skoraði 13 mörk í 15 leikjum og lagði upp 6 önnur. Hann fiskaði þar að auki víti sem skilaði marki. Frábært sumar og viðeigandi endir á glæstum ferli hans hjá FH. Fréttablaðið valdi hann enda leikmann sumarsins í Landsbankadeild karla Rétt á eftir Allan í einkunnagjöf Fréttablaðsins komu félagar hans í FH, Auðun Helgason og Tryggvi Guðmundsson, og fjórði FH-ingurinn, Guðmundur Sævarsson, er svo í fimmta sæti. Fréttablaðið heyrði í þjálfara FH, Ólafi Jóhannessyni, og bað hann um gefa álit sitt á þessum lærisveinum sínum. "Allir þessir strákar áttu frábært sumar með FH. Allan var besti framherji landsins í sumar og ég hef margoft sagt að hann sé frábær fótboltamaður. Hann er þar að auki einstaklega góður félagi og féll mjög vel inn í okkar hóp. Hann er kærulaus og þægileg týpa. Lífið er ekki flókið hjá honum og það er heldur enginn hroki í honum," sagði Ólafur, sem þarf að fylla skarð Allans í vetur enda er hann farinn til Noregs. Þeir Auðun og Tryggvi komu báðir úr atvinnumennsku fyrir tímabilið og mörgum knattspyrnumanninum hefur reynst það þrautin þyngri að spila á ný hér á landi eftir að hafa verið í atvinnumennsku til margra ára. Það vandamál glímdu Auðun og Tryggvi ekki við enda með hausinn á réttum stað. "Margir þessara atvinnumanna hafa komið heim til að deyja og fyrsta árið er oft erfitt. Þess vegna ræddi ég þetta við strákana fyrir mótið og gerði þeim grein fyrir þessu. Þeir fóru báðir beint í vinnu og héldu sér á jörðinni. Voru með rétt hugarfar og þess vegna tókst þeim svona vel upp í sumar. Auðun er mikill leiðtogi og Tryggvi er frábær knattspyrnumaður og stórskemmtilegur fýr. Ég vil meina að þetta sé besta endurkoma atvinnumanna í íslenska boltann á ný. Báðir komust þeir líka í landsliðið, sem segir ýmislegt," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Í beinni: Serbía - Ísland | Er allt klárt fyrir EM? Fótbolti Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: KA - Valur | Pedersen nálgast markametið Heldur ekki áfram með Leicester Í beinni: Serbía - Ísland | Er allt klárt fyrir EM? Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården Fotios spilar 42 ára með Fjölni „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ „Við erum bara búin að fara í eina átt og það er upp“ „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Einar tekur við Víkingum Pogba og Fati mættir til Mónakó Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Mikael orðinn leikmaður Djurgården Alexander Máni seldur til Midtjylland Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins „Menn fundu aftur hvernig það er að vera í góðu liði“ Real rústaði Salzburg og vann riðilinn Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar Sjá meira