Sport

Grétar vill vera áfram hjá Val

Grétar Sigfinnur Sigurðsson, sem lék með Val í Landsbankadeild karla í sumar, hefur áhuga á því að vera áfram leikmaður hjá Val en framtíð hans til þessa hefur verið óljós þar sem Grétar er einungis á lánssamningi frá Víkingi, sem komst upp úr 1. deildinni í sumar. "Mér hefur liðið vel hjá Val og vonandi verð ég áfram hjá félaginu. Eftir að Sigurður Jónsson ákvað að hætta sem þjálfari Víkings fór nú eiginlega minn áhugi á því að vera hjá félaginu því hann kenndi mér margt og ég ber mikla virðingu fyrir honum sem þjálfara. Ég hef nú ekki trú á því að Víkingur vilji halda mér óánægðum en félögin verða að ná samkomulagi um það hvernig félagaskiptum mínum verður háttað." Grétar stefnir á að verða Íslandsmeistari með Val á næsta tímabili og vonast eftir því að geta verið hjá félaginu að minnsta kosti eitt ár í viðbót. "Ég vil taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem nú er hafið að Hlíðarenda og ég er viss um að við getum orðið Íslandsmeistarar á næstu leiktíð. En ég stefni á að komast í atvinnumennsku í framtíðinni og svo vil ég líka komast í landsliðið eins og allir metnaðarfullir leikmenn."Enginn stjórnarmaður Víkings hafði talað við Grétar um að koma aftur til félagsins. "Ég hef ekki heyrt í neinum hjá Víkingi um að koma aftur til baka. Það þarf ekkert að vera neitt undarlegt þar sem stjórnin er örugglega að ganga frá samningamálum við leikmenn og þjálfara. En það væri þægilegt ef málin myndu skýrast sem fyrst því það er slæmt að hafa þessi mál í lausu lofti. Það hlýtur að vera farsælast að fá niðurstöðu í þessi mál sem fyrst."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×