Baráttusigur KR-inga í rokinu 22. maí 2005 00:01 "
Þetta var mikill rokleikur og við erum mjög sáttir við að hafa fengið stigin þrjú," sagði Magnús Gylfason að loknum leik KR og Fram í Frostaskjólinu í gær. Aðstæður voru varla boðlegar, ískalt og mjög hvasst. Völlurinn var greinilega harður og rann boltinn illa á honum. Leikurinn var, miðað við þetta, alls ekki slæmur. KR-ingar voru mun betri en gegn Fylki í 1. umferðinni og Framarar voru að leika fína knattspyrnu. Grétar Ólafur Hjartarson lék sinn fyrsta leik fyrir KR en Kim Nörholt var ekki í leikmannahópi Fram. Grétar átti einmitt fyrsta færi leiksins er hann skýtur yfir mark Framara á 3. mínútu. Arnar Gunnlaugsson gerði hið sama síðar í leiknum og fóru reyndar framherjarnir báðir illa með færin sín í leiknum öllum.Um var að ræða varnarsigur KR, fyrst og fremst. Veikasti hlekkurinn, Gunnar Einarsson, var tekinn út af á 40. mínútu og steig KR-vörnin ekki feilspor eftir það. Sigmundur Kristjánsson fór í hans stöðu og Rógvi Jacobsen fór í fremstu víglínu. "Gunnar meiddist en breytingin var líka taktísk," sagði Magnús. "Ég vildi stóran mann í framlínuna vegna roksins."Miðjan hjá KR var betri en gegn Fylki, en getur samt betur. Hið sama má segja um Fram sem saknaði greinilega Nörholt sem var duglegur að skapa færin gegn ÍBV um síðustu helgi. Sóknarmennirnir sýndu ágæta takta, sérstaklega Andri Fannar framan af en þeir voru ávallt stöðvaðir af vörninni eða Kristjáni í markinu, manni leiksins. Framarar sóttu stíft á lokamínútunum, en Magnús sagðist ekki hafa verið áhyggjufullur. "Við gerðum okkar skyldu. Ég er sáttur við mína menn enda lögðu þeir sig mikið fram."Leikjadagskráin er þétt þessa dagana í Landsbankadeildinni og eru þessir leikir þýðingamiklir. 6 stig KR-inga úr fyrstu tveimur umferðunum eru einkar dýrmæt, sérstaklega þegar að andstæðingar þeirra hafa leikið jafn vel og raun ber vitni. Það gæti haft mikið að segja þegar fram líða stundir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Segir styttast í fyrsta sigurinn Sjá meira