Schröder vill keyra á persónukjör 25. maí 2005 00:01
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, leggur mikið undir. Með því að flýta kosningum um heilt ár, á tímum þegar jafnaðarmannaflokkur hans mælist á landsvísu með um fimmtán prósen minna fylgi en aðalkeppinauturinn Kristilegir demókratar, er líklegast að hann sé að stytta eigin valdatíma um heilt ár. Eftir niðurlægjandi ósigur jafnaðarmannaflokksins í sterkasta vígi hans, sambandslandinu Nordrhein-Westfalen, um síðustu helgi lítur hann svo á að sig skorti nægilega sterkt lýðræðislegt umboð til að koma efnahagsumbótastefnu sinni í framkvæmd. Hann verði því að sækja nýtt umboð til kjósenda - eða víkja fyrir öðrum sem kjósendur treysta betur. Kanslarinn hefur samkvæmt þýsku stjórnarskránni ekki vald til að rjúfa þing og boða kosningar sjálfur - nema þingið hafi áður samþykkt vantraust á hann. Því mun þann 1. júlí fara fram atkvæðagreiðsla á Sambandsþinginu um vantraust á Schröder og ríkisstjórn hans, þar sem stjórnarliðar jafnaðarmanna og græningja munu sitja hjá. Sömu aðferð beitti Helmut Kohl er hann vildi boða til kosninga árið 1983, í kjölfar þess er hann tók við kanslarastólnum af jafnaðarmanninum Helmut Schmidt á miðju kjörtímabili. Þess er vænst að kosningarnar fari fram hinn 18. september næstkomandi. Í fyrsta blaðaviðtalinu sem Schröder veitti eftir að hann lýsti því yfir að hann vildi flýta kosningunum segist hann vilja "mjög persónumiðaða" kosningabaráttu. Í ljósi þess hve forskot stjórnarandstöðunnar er mikið í skoðanakönnunum er skiljanlegt að kanslarinn reyni að nýta þá styrkleika sem hann hefur í samanburði við væntanlegan keppinaut sinn um kanslarastólinn. Hann vill reyna að nýta sér "kjörþokkaforskotið" sem segja má að hann hafi fram yfir hina frekar litlausu Angelu Merkel, formann Kristilegra demókrata. "Ég held að okkur sé ráðlegt að heyja mjög persónumiðaða kosningabaráttu, sniðna að kanslaraefnunum tveimur," segir Schröder í viðtali við vikublaðið Die Zeit.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira