Íhaldsmenn ríða á vaðið 11. apríl 2005 00:01
Íhaldsmenn kynntu í gær stefnuskrá sína fyrir bresku þingkosningarnar sem haldnar verða 5. maí. Boðaðar eru takmarkanir á fjölda innflytjenda, auknar fjárveitingar til lögreglu og betri heilsugæslu. Verkamannaflokkurinn og Frjálslyndir demókratar kynntu einnig hluta af stefnumálum sínum í gær. Segja má að kosningabaráttan í Bretlandi hafi formlega hafist í gær þar sem drottningin leysti þingið frá störfum. Íhaldsflokkurinn kynnti stefnuskrá sína í gær og reið þar með á vaðið. Michael Howard, leiðtogi þeirra, var hróðugur á svip þegar hann veifaði þunnum bæklingi þar sem stefnumálin voru útlistuð. "Við viljum hafa stefnuskrána stutta svo að fólk nenni að lesa hana," sagði hann við blaðamenn. Íhaldsmenn hyggjast sérstaklega beita sér fyrir sex málum nái þeir kjöri: fjölgun lögreglumanna, betri og hreinni sjúkrahúsum, lægri sköttum, aga í skólum, takmörkun á fjölda innflytjenda og ríkari ábyrgðarskyldu stjórnmálamanna. Þessi mál setja þeir fram undir kjörorðinu "Hugsar þú það sem við hugsum?". Það er ekki síst harðari stefna í innflytjendamálunum sem íhaldsmenn telja sér til tekna en þeir leggja til að svipað kerfi verði tekið upp og Ástralir styðjast við þar sem aðeins tilteknum fjölda útlendinga er heimilað að flytja til landsins. Talsmenn hinna stóru flokkanna gagnrýndu stefnuskrána harðlega. Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra sagði að almenningur hefði þegar lýst því yfir að hann vildi ekki að íhaldsmenn væru við stjórnvölinn í mennta- og félagsmálum. Alan Milburn, kosningastjóri Verkamannaflokksins, tók í svipaðan streng. "Þetta er ný stefnuskrá fyrir sama gamla Íhaldsflokkinn. Hún sýnir að þeir standa ekki fyrir tækifæri heldur forréttindi." Frjálslyndir demókratar lýstu því yfir að þeir myndu sjá til þess að 21.000 nýir kennarar yrðu ráðnir á kjörtímabilinu næðu þeir kjöri. Þá kynnti Verkmannaflokkurinn stefnu sína í menntamálum og áætlanir í efnahagsmálum.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fleiri fréttir Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent