Kirkjan sögð þvermóðskufull 11. apríl 2005 00:01
Bandarískur erkibiskup sem sagði af sér í kjölfar barnaníðingahneyksla leiddi í dag minningarþjónustu um páfa í Vatíkaninu. Fórnarlömb níðinganna segja þetta til marks um þvermóðsku kaþólsku kirkjunnar. Bernard Law var erkibiskup í Boston þar til í desembermánuði árið 2002 þegar hann sagði af sér. Ástæðan var sú að hann hafði í raun hylmt yfir með prestum sem sakaðir voru um níðingsskap gegn börnum og hafði hjálpað þeim að flytja sig á milli sókna í stað þess að reka þá. Law baðst afsökunnar á athæfinu og sagði af sér. Skömmu síðar var hann kallaður til Rómar og gerður að erkipresti í basilíku heilagrar Maríu auk þess sem honum voru þar fengin önnur trúnaðarstörf. Í dag féll það svo honum í skaut að stýra minningarathöfn um Jóhannes Pál páfa í Péturskirkjunni í Róm og það var meira en fórnarlömb níðinganna gátu sætt sig við. Scott Steinkerchner, pílagrímur frá Boston, segir að mikill sársauki sé innan kirkjunnar þar í borg. Með því að gera Law að erkpresti séu send skilaboð þess efnis að Vatíkanið skilji ekki þann sársauka og hve mikill sársauki varð eftir í Boston þegar Law yfirgaf borgina. Barbara Blaine, forseti samtaka fórnarlamba níðinganna, bendir á að Law hafi verið skipaður í virðingarstöðu í Vatíkaninu. Samtökin telji að með því sé verið að strá salti í sárin. Nú um stundir syrgi kaþólsk fólk um allan heim og á þessari stundu ætti ekki að draga athyglina að hneyksli tengdu kynferðislegri misnotkun. Innan Páfagarðs virðist lítill skilningur á þessum umkvörtunum og Law er þar meðal helstu áhrifamanna. Hann er meðal annars einn þeirra sem velja næsta páfa.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Fleiri fréttir Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent