Umdeildur kardínáli leiðir athöfn 11. apríl 2005 00:01
Minningarathöfn verður haldin um Jóhannes Pál páfa í Péturskirkjunni í Róm í dag. Athöfnina leiðir fyrrverandi biskup sem segja varð af sér vegna barnaníðingsmála. Bernard Law var erkibiskup í Boston þar til í desembermánuði árið 2002 þegar hann sagði af sér í kjölfar uppljóstrana þess efnis að hann hefði leyft prestum sem sakaðir voru um að misnota börn að skipta um sóknir til að komast hjá gagnrýni og hneykslismálum. Law baðst afsökunnar á athæfinu og sagði af sér. Skömmu síðar var hann kallaður til Rómar og gerður að erkipresti í basilíku heilagrar Maríu, mesta helgistað í kristinni trú sem helgaður er Maríu mey, að sögn þeirra sem til þekkja. Skipun Laws olli á sínum tíma hneykslan og reiði meðal fórnarlamba barnaníðinga í prestastétt sem Law sá ekki ástæðu til að reka heldur aðeins færa til í starfi. Þessum fórnarlömbum sárnar að hann skuli leiða eina af níu minningarmessum um Jóhannes Pál. Sérfræðingar í málefnum kaþólsku kirkjunnar segja það þó fullkomlega eðlilegt í ljósi þess að Law sé nú áhrifamesti Bandaríkjamaðurinn innan kirkjunnar og þungavigtarmaður í Páfagarði. Hann er meðal þeirra kardínála sem fá innan skamms það verk að velja eftirmann Jóhannesar Páls annars. Allt þetta finnst fórnarlömbum barnaníðinganna benda eindregið til þess að kaþólska kirkjan hafi ekkert lært af hneykslismálunum í Bandaríkjunum þar sem enga iðrun sé að finna og því síður stefnubreytingu.
Erlent Fréttir Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Innlent Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Erlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Sjá meira