Lék rúmar 4000 mínútur í röð 13. apríl 2005 00:01
Það er óhætt að segja að Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson sé búinn að vera fastamaður í liði 1. deildarliðs Reading í vetur en hann varð af sínum fyrstu mínútum á leiktíðinni um síðustu helgi er honum var skipt af velli gegn Sunderland. Fram að þessari skiptingu hafði Ívar leikið 4195 mínútur í röð með Reading eða alla þá 46 leiki sem þeir voru búnir að leika í vetur. Hann var tekinn af velli í leik númer 47 sem er einstakt afrek í þessari sterku deild. "Auðvitað var ég vonsvikinn en aðallega var ég svekktur út í sjálfan mig fyrir að leika ekki betur," sagði Ívar í viðtali á heimasíðu Reading en stöðu hans á vellinum tók gamli Arsenal-jálkurinn Martin Keown. Ívar var skipt af velli á 56. mínútu en hann gaf Sunderland mark fjórum mínútum áður. Hann lék aldrei þessu vant ekki vel og því gat stjóri Reading, Steve Coppell, ekki annað en tekið hann af velli. "Ég gerði skelfileg mistök og ég tek markið algjörlega á mig. Stjórinn ákvað að taka mig af velli og ég ber virðingu fyrir þeirri ákvörðun hans. Ég mun reyna að forðast slík mistök aftur," sagði Ívar en sem betur fer fyrir hann skipti markið engu þegar upp var staðið þar sem félagar hans skoruðu tvisvar eftir að hann var farinn af velli og sigruðu leikinn. Það er mikið rætt um hvort Ívar verði í liðinu um næstu helgi en hann þótti sýna vanvirðingu með því að rjúka beint inn í göngin eftir skiptinguna. Hann kom þó fljótt aftur og settist á bekkinn. "Ég þurfti aðeins að anda nokkrum sinnum áður en ég fékk mér sæti. Ég var það svekktur. Vonandi verð ég samt í liðinu um næstu helgi," sagði Ívar.
Íslenski boltinn Mest lesið Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Íslenski boltinn Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Sport Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Fleiri fréttir Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Eir og Ísold mæta á EM Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Frank Mill er látinn „Sagt að mér gæti blætt út“ Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Sjá meira