Blair kynnir loforð sín 13. apríl 2005 00:01
Verkamannaflokkurinn kynnti í dag stefnuskrá sína fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða eftir þrjár vikur. Mikil áhersla er lögð á stöðugleika í efnahagsmálum en einnig er harðari stefna í innflytjendamálum boðuð. "Ég trúi því að þetta þjóðfélag sé betra, sterkara og réttlátara í dag en það var þegar við tókum við stjórnartaumunum af íhaldsmönnum árið 1997. Við getum hins vegar gert miklu meira," sagði Tony Blair, forsætisráðherra Breta, þegar hann kynnti stefnuskrána í Lundúnum í gær, umkringdur samráðherrum sínum. Hann sagði einnig að kosningarnar nú væru hans síðustu. Stefnuskráin er allþykk, 112 blaðsíður, og ber yfirskriftina "Bretland: áfram, ekki afturábak." Efnahagsmálin eru þar í öndvegi en einnig er dágóðu máli varið í innflytjenda- og menntamál. Flokkurinn lofar að á kjörtímabilinu verði tekjuskattur ekki hækkaður og matvæli, barnaföt, bækur og ýmislegt fleira verði áfram undanþegin virðisaukaskatti. Herör er skorin upp gegn glæpum og óspektum í stefnuskránni. Þar er jafnframt lagt er til að tekið verði upp punktakerfi að ástralskri fyrirmynd fyrir innflytjendur og að nafnskírteini með lífsýnum verði tekin upp í skrefum á kjörtímabilinu. Áfram verður unnið að friði í Mið-Austurlöndum og breskar hersveitir verða í Írak svo lengi sem Írakar óski þess sjálfir. Blair sagði ennfremur að breytingum á lávarðadeildinni yrði framhaldið. Leiðtogar íhaldsmanna og frjálslyndra fundu stefnuskránni flest til foráttu eins og búast mátti við. Sir Menzies Campell, talsmaður frjálslyndra í forföllum Charles Kennedy sem fæddist sonur í fyrradag, sagði að kjósendur ættu að dæma Verkamannaflokkinn eftir verkum hans en ekki loforðum. Nýjustu skoðanakannanir benda til að ríkisstjórn Blair haldi velli í kosningunum. Samkvæmt könnun MORI-fyrirtækisins sem gerð var í gær fær Verkamannaflokkurinn 39 prósent atkvæða, íhaldsmenn 35% og frjálslyndir 21%
Erlent Fréttir Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Sjá meira