Ummæli Péturs ósmekkleg 21. desember 2005 20:00
Framkvæmdastjóri Alþjóðahúss segir ummæli Péturs Blöndal alþingismanns í DV í dag, þar sem hann fullyrðir að útlendingar líti á mæðrastyrksnefnd sem tekjuölfun fyrir jól, ósmekkleg. Formaður mæðrastyrksnefndar segir Pétur lifa í öðrum heimi en annað fólk og við því sé ekkert að gera. Í DV í dag er frétt um meinta misnotkun dóttur Péturs á matarúthlutun Mæðrastyrksnefndar sem Pétur segir að sé skýrt dæmi um galla á úthlutun mæðrastyrksnefndar. Í fréttinni er það haft eftir Pétri að hann fullyrði að útlendingar sem leiti til nefndarinnar fyrir jólin líti á það sem tekjuöflun, og lætur þar með að því liggja að útlendingar notfæri sér styrkveitingar nefndarinnar án þess að þurfa á því að halda. Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, er hissa á ummælum Péturs. "Mér finnst þau einfaldlega ósmekkleg, sérstaklega svona rétt fyrir jól," segir hann. Einar segir enginn rök sýna fram á það að allir útlendingar bindist samtökum fyrir jól til að fá sem mest út úr mæðrastyrksnefnd. Hann bendir hins vegar á að útlendingar sem hingað koma fái ekki aðgang að félagslegri aðstoð yfirvalda og því sé ekkert óeðlilegt þó þeir sem hafi ekki til hnífs og skeiðar fyrir jól leiti til mæðrastyrksnefndar eins og Íslendingar sem svipað er ástatt um. Formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Ragnhildur Guðmundsdóttir, vildi ekki tjá sig um málið í dag að öðru leyti en því að hún sagði þingmanninn Pétur Blöndal lifa í öðrum heimi en þeim sem mætti forsvarsmönnum Mæðrastyrksnefndar á degi hverjum nú fyrir jól. Við því væri hins vegar ekkert að gera.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Sjá meira