Alvöru stjörnustríð í Kaliforníu 30. október 2005 21:00
Stjörnustríð er háð í Kaliforníu þessa dagana. Hollívúddleikararnir Warren Beatty og Arnold Schwarzenegger, sem jafnframt er ríkisstjóri, vega hvor að öðrum opinberlega. Margir telja að Warren Beatty sé að kanna hvort grundvöllur sé fyrir mótframboði á næsta ári. Það blæs ekki byrlega fyrir Schwarzenegger þessa daganna. Fylgi hans mælist nú aðeins um 30% en framundan eru kosningar þar sem hann hefur lagt mikið undir. Áttunda nóvember kjósa Kaliforníubúar um átta tillögur að lagabreytingum. Af þeim eru fjórar sem Schwarzenegger hefur lagt mikla áherslu á að fá samþykktar. Allar fjórar hafa mætt mikilli andstöðu hagsmunasamtaka sem persónugera þær í Tortímandanum fyrrverandi og eyða gríðarlegum fjármunum í neikvæðar auglýsingar. Tillögurnar fjórar eru: Að losa um kjarasamninga kennara. Banna verkalýðsfélögum opinberra starfsmanna að eyða félagsgjöldum í pólitískum tilgangi án skriflegs leyfis félagsmanna. Losa um höft á fjárlögum ríkisins og auka vald ríkisstjóra og færa vald yfir kjördæmaskipan frá þinginu til þriggja manna nefndar. Öflug félög húkrunarfræðinga, kennara og annarra opinberra starfsmanna hafa augljósra hagsmuna að gæta og hefur þeim borist liðsauki Hollywood leikarans og kennarasonarins, Warren Beatty. Hann mætir á hvern mótmælafundinn á fætur öðrum talar sem vanur pólitíkus, en hann hefur lengi verið harður demókrati eins og aðdáendur kvikmynda hans þekkja vel. Stuðningsmenn Schwarzeneggers segja Beatty vera kjúkling sem ekki þori í alvöru slag. Beatty segist hins vegar bera hag barna sinna og fylkis fyrir brjósti, ekki vera á leiðinni í pólitík nema aðstæður neyði hann til. Stóru orðin eru ekki spöruð og íbúar í Kaliforníu búa sig nú undir átök tveggja stjarna í ríkisstjórnarkosningunum á næsta ári. Því þó ríkisstjórinn Schwarzenegger sé í lægð núna telja menn erfitt að berjast við stjörnuljómann nema bjóða fram eitthvað annað sem stirnir.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins „Ef ég get þetta þá geta allir þetta“ „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? Sjá meira