Innlent

Þrjár milljónir heimilislausar

MYND/AP

Þrjár milljónir manna eru enn á húsaskjóls og nauðþurfta á skjálftasvæðinu í Kasmír. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja þörf á tvöhundruð og fimmtíu milljónum dollara þegar í stað eigi fólkið ekki að deyja úr kulda og vosbúð á næstu vikum.

Slæmt veður og eftirskjálftar gera björgunarmönnum erfitt fyrir. Indverjar og Pakistanar náðu í gær samkomulagi um að opna landamæri sín fyrir björgunarliðinu og hjálpargögnum sem skipuleggjendur hjálparstarfsins segja að muni bjarga mörgum. Engin farartæki mega þó fara yfirlandamærin heldur verður að selflytja allt á fæti. Meira þarf þó til að þrjár milljónir manna lifi af snjóþungan veturinn en aðeins eru nokkrar vikur uns snjóa tekur á svæðinu.

Talsmenn Sameinuðu þjóðanna segja það enn vandamál hversu hægt og illa fjármunir berast og að auk þess hafi of litlu verið heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×