Færð og veður í dag: 29. október 2005 10:00 MYND/E. Ól
Enn liggur allt innanlandsflug niðri vegna ísingar og ókyrrðar í lofti, en athugað verður með flug um klukkan ellefu. Þá er Holtavörðuheiðin lokuð vegna ófærðar og eu vegfarendum bent á að fara Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Lokað er um Víkurskarð og Ólafsfjarðarmúla. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut.Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum. Á Suðurlandi eru hálkublettir. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir. Á Vestfjörðum er mokstur hafin á Klettshálsi, Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði. Á Norðvesturlandi er hálka og snjóþekja, ófært er um Þverárfjall. Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja, éljagangur og skafrenningur. Á Austfjörðum er óveður á Möðrudalsöræfum og hálka. Hálka er á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði, Oddsskarði og Fagradal. Búast má við stormi norðan - og austanlands í dag, norðvestan 15 til 23 metrum á sekúndu, en mun hægari suðvestan og vestanlands. Þá verður slydda og snjókoma, einkum á Norðurlandi. Töluvert annríki var hjá björgunarsveitum í óveðrinu sem gekk yfir sunnan- og vestanvert landið í gær. Bifreið fauk út af veginum við Húnaver í gærkvöld og slasaðist ökumaðurinn. Björgunarsveitir á Hellu og Hvolsvelli voru kallaður út um níuleytið í gærkvöld vegna flutningabíls, sem fokið hafði við Markarfljótsbrú. Ákveðið var að fresta aðgerðum til að bjarga honum þangað til í dag. Þá urðu tugir umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu. Í Vestmannaeyjum þurftu bæjarbúar aðstoð björgunarmanna vegna ófærðar. Þakplötur flugu og fergja þurfti lausa hluti. Í Reykjanesbæ voru einnig kallaðar út björgunarsveitarmenn vegna fjúkandi þakplatna við Helguvík. Eftir að veður gekk niður um tíuleytið í gærkvöld voru ekki miklar annir hjá lögregluembættunum. Þrátt fyrir að fólk léti vetrarveður ekki hamla því að það skellti sér út á lífið var nóttin róleg hjá lögreglu um land allt. Veðurvefur Vísis
Fréttir Innlent Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Fleiri fréttir Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Sjá meira