Bíó og sjónvarp

Tilnefningar til Eddunnar: Leikstjórn ársins

Dagur Kári (Voksne Mennesker)Voksne Mennesker

"Dagur Kari skapar mjög sérstakt og leiftrandi ljóðrænt andrúmsloft með mynd, tónlist og leik og tekst afar vel að nýta sér styrk einfaldleikans í frásögn sinni. Hann er óhræddur við að brjóta hefðir og margar senur í myndinni eru afgreiddar á ógleymanlegan hátt."

FRAMLEIÐANDI: Nimbus Film / co-prod. Zik Zak

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Dagur Kári

HANDRIT: Dagur Kári & Rune Schjott

Ólafur Jóhannesson (Africa United)Africa United

"Leikstjórinn nær svo miklu út úr sögupersónunum að það er lygilegt á köflum. Honum tekst að búa til fallega, skemmtilega og heilsteypt mynd, jafnvel þó að viðfangsefnið sé fótbolti. Ólafur gerir tilraun til að brúa bilið milli heimildarmyndar og leikinnar kvikmyndar og tekst það"

FRAMLEIÐANDI: Ragnar Santos, Benedikt Jóhannesson, Ólafur Jóhannesson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Ólafur Jóhannesson

HANDRIT: Ólafur Jóhannesson

Marteinn Þórsson & Jeff Renfro (1.0)One Point O

Leikstjórunum tekst að búa til trúverðugan framtíðarheim þar sem tölvur og stórfyrirtæki drottna yfir einstaklingnum. Kvikmyndataka, hljóðvinnsla, leikmynd og leikur haldast vel í hendur til að koma til skila dularfullri og grípandi frásögn í sterkri, órofa heild.

FRAMLEIÐANDI: Friðrik Þór Friðriksson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Marteinn Þórsson / Jeff Renfroe

HANDRIT: Marteinn Þórsson / Jeff Renfroe






Fleiri fréttir

Sjá meira


×