Bíó og sjónvarp

Kvikmynd ársins:

Voksne Mennesker"Heillandi lýsing á þroskaferli iðjuleysinga. Persónusköpun frumleg með skemmtilegri áherslu á smáatriði. Myndin vekur til umhugsunar og persónurnar vekja samúð hjá áhorfandanum.

Kvikmyndataka er góð og annað útlit myndarinnar skemmtilega stílfært. Vel leikin kvikmynd sem heillar með sterkri stemmingu, hvíld og vissu látleysi."

FRAMLEIÐANDI: Nimbus Film / co-prod. Zik Zak

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Dagur Kári

HANDRIT: Dagur Kári & Rune Schjott

Strákarnir okkar"Létt og húmorísk lýsing á minnihlutahóp í Reykjavík. Myndin er undir áhrifum raunveruleikasjónvarps og áhorfandanum haldið fjarri aðalpersónunni sem er aðgerðarlítill leiksoppur aðstæðna. Skemmtilegar persónur og leiktilþrif hjá nokkrum leikurum. Leikstjóri myndarinnar er að matreiða viðkvæman boðskap á persónulegan hátt. Kraftmikil tónlist og hrá kvikmyndataka styrkja stemningu myndarinnar."

FRAMLEIÐANDI: Júlíus Kemp, Ingvar Þórðarson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Róbert Douglas

HANDRIT: Róbert Douglas & Jón Atli Jónasson

One Point O"Drungaleg lýsing á baráttu manns við óþekkta sýkingu sem hann verður fyrir sem óviljandi tilraunadýr. Sagan gerist í óskilgreindri framtíð á undarlegum stað og fjallar um máttleysi einstaklingsins gagnvart óvelkominni mötun. Skemmtileg leikmynd, vönduð lýsing og tæknivinna. Þó hvílt sé á kunnuglegum tilvísunum er myndin áhugavert fyrsta verk og gefur tilefni til að búast við meira af höfundinum. Leikur og leikstjórn fagmannleg."

FRAMLEIÐANDI: Friðrik Þór Friðriksson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Marteinn Þórsson / Jeff Renfroe

HANDRIT: Marteinn Þórsson / Jeff Renfroe






Fleiri fréttir

Sjá meira


×