Ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga 27. október 2005 19:28
Það þarf ekki að vera slæmt fyrir Íslendinga að þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna hafi verið falið að leiða varnarmálin á Íslandi til lykta. Þó er ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga og ekki dregið saman í varnarviðbúnaði hér á landi, að sögn sérfræðings í öryggismálum. Fréttastofan greindi frá því í gær að þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, Steven Hadley, hafi tekið að sér að leiða varnarmál á Íslandi til lykta. Hingað til hefur bandaríska utanríkisráðuneytið farið með málið og spornað gegn því að haukarnir í varnarmálaráðuneytinu fái sínu framgengt, sem er að Keflavíkurstöðinni verði lokað. Bandaríska sendiráðið hér á Íslandi segir reyndar að ekkert hafi breyst, og aðstoðarmaður Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra, segir það sama. Fréttastofan stendur við frétt sína frá því í gær um að Hadley hafi verið falið að leiða málið til lykta. Þetta byggir á heimildum frá bandaríska utanríkisráðuneytinu sem fréttastofan telur traustar. Ein virtasta rannsóknarstofnunin á sviði stríðs, friðar og öryggismála er Stockholm peace research institute. Forstöðumaður hennar, Alyson Bailes, er einn fremsti öryggis- og varnarmálasérfræðingur heims. Hún segir að hafa verði í huga að eitt hlutverk þjóðaröryggisráðsins sé að sætta sjónarmið mismunandi ráðuneyta. Þetta þurfi þannig ekki að vera slæmt fyrir íslensk stjórnvöld. Alyson segir að enn séu mörg sjónarmið sem beri að taka mið af og þegarbandaríska varnarliðið hafi myndað sér stefnu og hún samþykkt af Bandaríkjaforseta, þá verði ekki mikið svigrúm fyrir breytingar eða frekari eftirmála. Alyson segir það mjög ólíklegt að einhverjar undantekningar verði gerðar fyrir Íslendinga en ef svo verði þá verði ekki um miklar undantekningar að ræða.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Sjá meira