Innlent

Veikindi geta hafa áhrif á mætingareiningu í framhaldsskólum

Framhaldsskólanemar búa við misjöfn kjör í skólum sínum þegar kemur að veikindum. Nemendur sem sýna fram á góða skólasókn fá sumir hverjir bónuseiningu en veikindi geta haft áhrif á þá einingu.

Sigurður Sigursveinsson, formaður Félags íslenskra Framhaldsskóla, segir að mætingakerfi séu misjöfn eftir skólum. Hann segir að meginreglan sé sú að nemendur eigi að mæta í tíma. Sumir skólar hafi þó farið þá leið að veita aukaeiningu eða draga af einingu, allt eftir því hvernig mæting nemenda sé. Hann segir þó vera tekið tillit til veikinda nemenda þegar þau komi upp.

Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari í Flensborgarskóla í Hafnarfirði, segir að nemendur skólans fái bónuseiningu ef þeir sýna fram á góða mætingu. Mætingareiningin miðast við 80% mætingu yfir eina önn eða svokallaða raunmætingu. Fjarvistir og veikindi hafa því áhrif á eininguna. Einar segir aðstæður langveikra nemenda sé metnar í hverju tilfelli fyrir sig en þeir nemendur standi utan við hið eiginlega mætingakerfi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×