Íslendingar eru trúaðir 26. október 2005 19:27
Íslendingar fara með Faðir vorið að meðaltali þrisvar í viku. Barnatrúin er sterk og þeir eru duglegir að biðja bænirnar með börnunum. Kirkjusókn hefur aukist lítillega síðustu árin en þó sinnir landinn einkum trú sinni í gegnum barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Kristin trú er ekki á undanhaldi meðal Íslendinga ef marka má könnun sem IMG Gallup hefur gert fyrir Þjóðkirkjuna og staða kirkjunnar hefur ekki veikst. Línurnar eru hinsvegar skarpari en áður, fólk tekur frekar afstöðu. Tilhneiging er til fjölhyggju í samfélaginu en sú þróun er ekki langt komin, þjóðin er enn það einsleit. Aukinn skilningur er á tilvist annarra trúarbragða. Karl Sigurbjörnsson, biskup Ísland, segir að það hafi komið honum þægilega á óvart hver staða bænarinnar væri á heimilinu og í raun sú sterka staða sem barnatrúin hefði í lífi Íslendinga. Barnatrúin á sterk ítök í Íslendingum enda trúir þorri Íslendingar á guð og á sér ríkulegt bænalíf, bæði einir og með börnum á kvöldin. Barnatrúin virðist einkenna trúarlíf Íslendinga og þeir fara oftar en áður í guðsþjónustu. Það sést kannski á því að aðeins rúmlega fjórtán prósent Íslendinga hafa tekið þátt í starfi kirkjunnar síðasta árið meðan ríflega áttatíu og þrjú prósent hafa tekið þátt í barna- eða æskulýðsstarfi kirkjunnar og það eru þá fyrst og fremst börn. Íslendingar eru duglegir að fara með Faðir vorið eða að meðaltali þrisvar í viku og fullorðnir eru iðnir við að fara með bænirnar með börnum sínum. Tæplega fjörutíu prósent gera það reglulega og fjórðungur gerir það stundum. Þegar spurt var hvort kristnar trúarathafnir ættu að vera liður í uppeldi barna á dagvistarstofnunum vildi það ríflega helmingur svarenda. Þeir voru þó heldur færri nú en árið 1987. Landsmenn vilja greinilega fræðslu um önnur trúarbrögð í grunnskólanum, það kemur greinilega fram í Gallup-könnuninni. Tæplega sextíu og fjögur prósent töldu fræðslu um önnur trúarbrögð en kristni of litla í grunnskólanum meðan kristinfræðikennslan væri mátuleg. Og að lokum. Jafnvægi virðist í framboði á trúarlegu efni í útvarpi eða sjónvarpi og þeim fjölgar sem vilja minnka trúarlegt efni í ljósvakamiðlum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hvar er Khamenei? Erlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira