Innlent

Ekki verði auglýst í ljósvakamiðlum

MYND/Pjetur

Stjórn Varðar, sem er fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti á fundi sínum að skora á frambjóðendurna í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum. Jafnframt lýsti stjórn Varðar þeirri von sinni að frambjóðendurnir héldu kostnaði við framboðið í hófi. Frá því að áskorunin var samþykkt eru liðnir nítján dagar, stjórnarfundurinn var 7. október, samt hefur áskorunin ekki verið send út og kynnt frambjóðendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×