Innlent

Fundu neyðarsendi Vamos

Þyrla frá danska  varðskipinu Hvítabirninum fann í gær neyðarsendi skútunnar Vamos á floti skammt undan austurströnd Grænlands. Þann 27. september bjargaði áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar skipverja af laskaðri skútunni en félagi hans fórst. Þá var sendirinn ofan í skútunni og er því talið að hún sé sokkin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×