Innlent

Kuldakastið bjargaði

Fram undan er háannatími á hjólbarðaverkstæðum landsins en nú bregður svo við að erfiðlega gengur að manna verkstæðin.

"Áður fyrr hringdu hátt í fjörutíu manns vegna atvinnuauglýsinga frá okkur en nú hringir einn eða tveir og eru jafnvel bara að spá í málin," segir Sveinlaugur Hannesson á hjólbarðaverkstæðinu Nýbarða í Garðabæ.

"Kuldakastið fyrr í mánuðinum jafnar þetta hins vegar út svo sennilega bjargast þetta fyrir horn. Hefði þetta komið í einni gusu eins og í fyrra værum við í vanda," segir Sveinlaugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×