Nefndarmenn fengu tíu milljónir króna 26. október 2005 06:15
Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. Auk þess fékk Morgan Stanley- fjárfestingarbankinn greiddar 682 milljónir fyrir ráðgjöf sína. Í viðbót við tíu milljóna króna greiðslu til nefndarmanna og tæpra sjö hundruð milljóna til ráðgjafarfyrirtækisins voru greiddar rúmar sextíu milljónir fyrir lögfræðiráðgjöf og greinargerðir og tæpar tíu milljónir fyrir ýmsa aðra ráðgjöf og annan kostnað. Í framkvæmdanefnd um einkavæðingu áttu sæti Jón Sveinsson formaður, Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Sævar Þór Sigurgeirsson, löggiltur endurskoðandi, og Illugi Gunnarsson hagfræðingur. Starfsmenn nefndarinnar voru Stefán Jón Friðriksson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Jörundur Valtýsson, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu. Nefndarmenn sinntu starfinu samhliða fullri launaðri vinnu. Kostnaður vegna sölu Símans frá ársbyrjun 2004 til þess tíma er söluverð var greitt ríkinu nam samanlagt 786 milljónum. Sé tillit tekið til viðbótararðgreiðslu Símans í febrúar síðastliðnum, sem var 4,2 milljarðar, nemur hlutfallslegur sölukostnaður um 1,11 prósent af söluandvirði Símans, segir í skýrslunni. Framkvæmdanefndin segir að sú niðurstaða verði að teljast hagstæð, sé miðað við innlend og erlend viðmið í því sambandi. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að framkvæmdanefndin hafi látið fara fram mat á fyrirtækinu sem var um fimmtán milljörðum undir söluverði, eða 52,4 milljarða króna að teknu tilliti til arðgreiðslu og skulda. Morgan Stanley, sem veitti nefndinni ráðgjöf um söluna, mat Símann hærra, á bilinu 57 til 68 milljarða. Til viðmiðunar var söluverðið 66,7 milljarðar. Nefndin telur að sala Símans hafi gengið vel og ríkissjóður fengið afar viðunandi verð fyrir eign sína.
Fréttir Innlent Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Fleiri fréttir Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjá meira