Innlent

Grunuð um smygl á fíkniefnum

 
 

Karl og kona hafa verið dæmt í tíu daga gæsluvarðhald vegna gruns um fíkniefnasmygl. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins með póstsendingum.

Hérðsdómur Reykjavíkur dæmdi fólkið í gæsluvarðhald fram til föstudags í næstu viku. Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú málið og verst allra frekari fregna af málinu að svo stöddu. Eins og fram kom í hádegisfréttum fyrr í dag er talið að fólkið hafi smyglað inn fíkniefnum nokkrum sinnum. Konan var starfssmaður á pósthúsi og notaði aðstöðu sína til að ná í pakningar sem innihéldu fíkniefni og voru sendar á pósthúsið. Lögreglan komst á sporið vegna pakka sem hún útbjó og sendi á pósthúsið. Konan tók pakkann og hafði samband við manninn sem staðgesti grun lögreglunnar um að þau stunduðu smygli á fíkniefnum til landsins. Fólkið hefur játað sök sína að hluta en þeim greinir á í framburði.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×