Nýr endurvarpi á Hornströndum 25. október 2005 08:45
Nýr endurvarpi fyrir talstöðvarbúnað björgunarsveita var settur upp í friðlandi Hornstranda á Vestfjörðum í fyrradag. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig en þyrlu þurfti til verksins. Staðið hafði til að setja endurvarpann upp á Fannalágarfjalli á Hornströndum í nokkrar vikur en veður hefur hamlað för, eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins besta. Landhelgisgæsla sá um verkefnið með aðstoð fjögurra björgunarsveita á Vestfjörðum en þannig hefur hist á að þegar þyrla hefur verið laus til verksins hefur veður ekki verið ákjósanlegt. Að sögn Eggerts Stefánssonar hjá Björgunarfélagi Ísafjarðar gekk verkið sæmilega vel á sunnudaginn en auk nýja endurvarpans sem settur var upp var skipt um gamlan endurvarpa á Snæfjalli. Nýja endurvarpanum er ætlað að bæta fjarskipti við víkurnar í friðlandi Hornstranda, Aðalvík, Fljótavík og jafnvel Hornvík, en eftir á að gera athuganir á því nákvæmlega hversu langt sambandið nær. Þegar lokið hafði verið við uppsetningu endurvarpanna tveggja stóð til að taka þann gamla á Snæfjalli niður og flytja hann til byggða, en þá þurfti þyrla Landhelgisgæslunnar að sinna útkalli á Faxaflóa. Gamli endurvarpinn var því skilinn eftir ásamt þeim mannsskap sem var fjallinu. Það kom þó ekki að sök að sögn Eggerts þar sem blíðviðri var á svæðinu og hópurinn gekk því einfaldlega niður á Sandeyri þar sem björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson sótti mannskapinn stuttu síðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Erlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Fleiri fréttir Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjá meira