Innlent

Eignarhaldið skorðað

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. „Að undanförnu hefur nauðsyn rammalöggjafar um starfsemi fjölmiðla orðið æ augljósari,“ segir í ályktun fundarins. Í ályktuninni er tekið til þess að koma þurfi í veg fyrir að markaðsráðandi aðilar geti haft áhrif á fréttaflutning og skoðanamyndun í landinu. Til þess að ná þessum markmiðum þurfi að setja skorður við eignarhald fjölmiðla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×