Innlent

D-listinn með tæp 46 prósent

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 45,9 prósent atkvæða ef kosið væri til borgarstjórnar í dag, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Samfylking fengi 30,8 prósent, Vinstri grænir 14,8 prósent, frjálslyndir 3,2 prósent og Framsókn 2,9 prósent. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn tapa tæpum tveimur prósentustigum frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar í ágúst, en aðrir flokkar bæta örlitlu við sig. Könnunin var gerð dagana 6.-10. október. Stuðst var við 1.200 manna úrtak og var svarhlutfall tæp sjötíu prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×