Innlent

Jarðskjálftahrina við Grímsey

Yfir 230 jarðskjálftar mældust um sextán kílómetrum austur af Grímsey, frá því síðdegis á föstudag og fram undir kvöld í gær. Flestir urðu skjálftarnir frá klukkan fimm aðfararnótt laugardags og fram til tíu í gærmorgun og mældist sá sterkasti 3,5 stig. Skjálftarnir sáust aðeins á mælum Veðurstofu Íslands en fundust ekki í eynni. „Við höfum ekkert fundið og sváfum þetta af okkur," sagði Sigrún Þorláksdóttir, formaður Kvenfélagsins Baugs, í Grímsey.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×