Innlent

Íslenskir hjólbarðar

Íslendingar hafa þróað og hannað stóra hjólbarða - 38 tommu - fyrir íslenskar aðstæður til aksturs í snjó og bleytu. Dekkin heita AT 4005. Þau eru framleidd í Kína og er fyrsta sendingin þegar komin í sölu hér á landi. Það eru forráðamenn Arctic Trucks sem standa að framleiðslunni. Mynstur dekkjanna er opið þannig að það hleypur krapa og vatni gegnum opnar rásir í mynstrinu. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Myndin tengist fréttinni ekki beint.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×