Átök hjá framsókn í kvöld? 23. október 2005 15:04
Átök hafa átt sér stað um stjórnarkjör í Framsóknarfélagi Reykjavíkurkjördæmis suður síðustu daga en óvenjumargir gefa kost á sér í stjórn og hefur það valdið því að stjórnin munhugsanlega ekki leggja fram tillögu á fundinum heldur lýsa eftir framboðum. Stefán Þór Björnsson, einn af frambjóðendum til stjórnar, er undrandi á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið. Hann segir í grein á hrifla.is að óvenjumargar konur hafi verið á upprunalegri tillögu stjórnar, eða fjórar konur í sjö manna stjórn. Hann hafi síðan frétt að Jónína Bjartmarz alþingismaður og Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi hafi krafist þess að Gerður Hauksdóttir og Kristín Guðmundsdóttir væru teknar af tillögunni. Félögum í Framsóknarfélaginu hefur fjölgað gríðarlega síðustu tvær vikurnar eða um 13 prósent, úr rúmlega 800 í tæplega 1.000. Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, er talinn stefna að fyrsta sætinu á framboðslista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor og hafa til þess stuðning forsætisráðherra. Fréttablaðið segir í dag að Björn Ingi sé að segja Alfreð Þorsteinssyni og Önnu Kristinsdóttur stríð á hendur en þau stefna að fyrsta sætinu. Alfreð sagðist fagna fjölgun í félaginu. "Ég hef ekki neinar áhyggjur," sagði hann við blaðamann í morgun.
Fréttir Innlent Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Erlent Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Erlent Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Erlent Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Erlent „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Innlent Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Erlent Ráku starfsmenn FBI sem fóru á hnéð eftir morðið á Floyd Erlent „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Innlent Fleiri fréttir Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Sjá meira