Sport

Sigurvin fer frá KR

Stjórn KR-Sport hefur ákveðið að semja ekki að nýju við miðjumanninn Sigurvin Ólafsson. Samningur Sigurvins við KR rennur út um áramótin og í gær tilkynnti KR sport þessa ákvörðun félagsins og greinilegt að Teitur Þórðarson, nýráðinn þjálfari KR, er farinn að taka til í leikmannahópnum. Sigurvin sagði í samtali við Fréttablaðið að hann vissi ekki hvað hvað tæki við hjá sér. "Einn möguleikinn er að hætta í boltanum en ég er opinn fyrir öllu. Við sjáum til hvað verður," sagði Sigurvin sem hóf ferilinn hjá ÍBV og segist enn bera sterkar taugar til félagsins.Sigurvin kom til KR fyrir leiktíðina 2001 frá Fram og varð Íslandsmeistari með félaginu árin 2002 og 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×