Alhvít jörð fyrir norðan og vestan 25. september 2005 00:01
Jörð er nú alhvít á Norðurlandi og flughált á götum í byggð sem og á þjóðvegum. Fyrsti alvöru snjórinn féll í gærkvöld og í nótt og er nú 5-10 sentímetra jafnfallinn snjór á Akureyri. Börn hafa dregið fram sleða og þotur og trjágróður er kominn í hvítan og fallegan jólabúning. Lögreglan segir ökumenn almennt ekki komna á vetrardekk en mikil hálka er á götum bæjarins. Það sem af er degi hefur umferð þó gengið stórslysalaust fyrir sig og skömmu fyrir hádegi höfðu einungis borist tilkynningar um tvö umferðaróhöpp sem rekja má til hálku og bæði voru þau smávægileg. Lögreglan á Blönduósi segir snjó hafa kyngt niður í morgun og flughált á götum bæjarins, sem á þjóðvegum í nágrenni Blönduóss. Bifreið lenti út af veginum í Vatnsskarði í nótt en þrennt var í bifreiðinni. Karlmaður slapp án meiðsla en tvær konur voru fluttar á heilsugæslustöðina á Sauðárkróki. Meiðsli þeirra eru þó ekki talin alvarleg. Alhvítt er einnig á Húsavík en lögreglunni hefur ekki borist fregnir af umferðaróhöppum þar í bæ. Lögreglu á Norðurlandi ber saman um að ökumenn séu flestir hverjir enn vanbúnir til vetraraksturs og rétt fyrir þá sem á annað borð neyðast til að vera á ferðinni í dag að gæta ítrustu varúðar. Á norðanverðum Vestfjörðum er einnig alhvít jörð. Lögreglan á Ísafirði áætlaði í morgun að þar væri um fimm sentímetra snjólag en þar snjóaði bæði í gær og í morgun. Þar er einnig hált og urðu nokkur hálkuóhöpp á fimmtudag og föstudag í umdæmi Ísafjarðarlögreglunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Erlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Erlent Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Erlent Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Erlent Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Erlent Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Erlent Keppast við að ákæra Comey Erlent Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Innlent Fleiri fréttir Fimm hundruð börn á biðlista eftir plássi í frístund Drónar í Danaveldi og Blóðbankinn opnar í Kringlunni „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir 3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Óskaði aðstoðar með gríðarstóran hníf Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Hélt ræðu gráti nær Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfaranda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Gular viðvaranir vegna úrkomu og aukin skriðuhætta Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Sjá meira