Sport

Viktor Bjarki efstur hjá Vodafone

Viktor Bjarki Arnarsson úr Fylki hafnaði í efsta sæti eftir sumarið í SMS kosningu Og Vodafone og áhorfenda í Landsbankadeildinni í sumar, eftir hörku einvígi við þá Matthías Guðmundsson í Val og Grétar Ólaf Hjartarsson úr KR. Þremenningarnir voru allir valdir menn leiksins fimm sinnum í sumar, en Viktor náði efsta sætinu vegna þess að hann lék færri leiki en þeir Grétar og Matthías. Það voru svo Valsmenn sem fengu flest atkvæði frá stuðninsmönnum í sumar, en Og Vodafone stóð fyrir vali á manni leiksins með SMS símskeytum í allt sumar og allur ágóði af þeim rann til félaganna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×