Innlent

Hálkan segir til sín

Þónokkur umferðaróhöpp urðu í gær og gærkvöldi sem öll eru rakin til hálku. Bíll valt á Suðurlandsvegi í Ölfusi, annar í Hveragerði, þá rann bíll út af veginum við Suðureyri í gærkvöldi vegna krapa og hafnaði ofan í fjöru, tveir bílar fóru útaf á Öxnadalsheiði og einn festist hreinlega í snjó á Fróðárheiði. Engin slys urðu í þessum tilvikum en lögregla vill vara ökumenn við því að nu sé að vænta vetrarskilyrða til aksturs næstu dagana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×