Fylkir í leit að þjálfara 20. september 2005 00:01
Nú þegar tímabilinu í Landsbankadeildinni er lokið er Fylkir eitt af þeim liðum sem þurfa að finna sér nýjan þjálfara fyrir næstu leiktíð. Ólafur Þórðarson, sem var fyrsti kostur Fylkismanna, hefur þegar framlengt samning sinn við Skagamenn og Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs landsliðs Íslands, hefur gefið Fylki afsvar. Fylkismenn eru þó með fleiri þjálfara á óskalistanum sínum og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Leifur Garðarsson vera efstur á þeim lista.Leifur hefur verið aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar hjá Íslandsmeistaraliði FH og er þar að auki fyrrverandi körfuboltadómari en hann var einn besti dómari landsins áður en hann lagði flautuna á hilluna. Hann ákvað þess í stað að snúa sér alfarið að þjálfun og hefur verið farsæll í því starfi. Ekki er ólíklegt að Leifur skrifi undir samning nú strax í vikunni en viðræður standa þó enn yfir. Annar þjálfari sem kemur sterklega til greina sem arftaki Þorláks Árnasonar er Sigurður Jónsson, þjálfari Víkinga. Hann hefur náð góðum árangri í Víkinni og kom félaginu upp í úrvalsdeildina um helgina. Hann var einnig sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá ÍA áður en ljóst varð að Ólafur ákvað að halda tryggð við Skagamenn. Sigurður mun hafa rætt við forráðamenn Fylkis en hann stendur einnig í viðræðum við Víkinga um áframhaldandi veru í starfi sínu þar.Þá er Magnús Gylfason einnig á lausu eftir að honum var vikið úr starfi hjá KR í sumar og hefur nafn hans einnig borið á góma hjá Fylkismönnum. Leifur vildi lítið segja þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær en samningur hans við FH-inga rennur út núna í haust.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þú setur ekki svona pressu á átján ára stelpu“ Fótbolti Nördarnir sem sigruðu Ísland: „Það fóru allir að hlæja“ Fótbolti Ofurhugi endaði lífið í sundlaug eftir að svifvængjaflug hans fór á versta veg Sport Guðrún kveður Rosengård Fótbolti Bjóða dómurum í WNBA ókeypis LASIK aðgerðir Körfubolti Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Enski boltinn „Ég vildi prófa eitthvað alveg nýtt í umhverfi sem ég þekki ekki mikið“ Fótbolti Tvíburar jafnir eftir fyrsta dag á Opna breska Golf Birnir Snær genginn til liðs við KA Íslenski boltinn Munkur slær í gegn á Opna breska Golf Fleiri fréttir Fimm íslenskir Evrópusigrar, sautján mörk í plús og met Blika og KR féll Mætti inn á með brúðkaupsmyndina á legghlífinni og breytti leiknum Nördarnir sem sigruðu Ísland: „Það fóru allir að hlæja“ Birnir Snær genginn til liðs við KA Hjálpaði til að vinna KR og var svo seldur Sló met Lennon og jafnaði met Atla Guðna Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir „Ég vildi prófa eitthvað alveg nýtt í umhverfi sem ég þekki ekki mikið“ „Þú setur ekki svona pressu á átján ára stelpu“ Tvíburar jafnir eftir fyrsta dag á Opna breska Guðrún kveður Rosengård Að minnsta kosti 57 marktilraunir í sögulegri endurkomu Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Ofurhugi endaði lífið í sundlaug eftir að svifvængjaflug hans fór á versta veg Dagskráin í dag: Opna breska heldur áfram Bjóða dómurum í WNBA ókeypis LASIK aðgerðir Munkur slær í gegn á Opna breska „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ „Hvert færi og hver sókn var nánast bara mark“ „Búin að segja við Sölva síðan ég kom að hann á mig inni í níunni“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jota í frægðarhöll Úlfanna Fimm jafnir á toppnum eftir fyrsta hring United gerir tilboð í Mbeumo í þriðja sinn Englendingar áfram eftir ótrúlega vítaspyrnukeppni Uppgjörið: Víkingur R. - Malisheva 8-0 | Víkingar gjörsigruðu gestina Átján ára norskt undrabarn til City Neymar með sigurmarkið í fyrsta heila leiknum í marga mánuði Sjáðu ótrúlegt mark Tryggva frá miðju Sjá meira