Fjölgum liðum og lengjum mótið 15. september 2005 00:01
Á morgun, 17. september, fer lokaumferðin fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, nákvæmlega fjórum mánuðum eftir að mótið hófst en þar verður fallbaráttan í hávegum. Þetta er líklega stysta knattspyrnuvertíð Evrópu, að baki henni liggur 7 til 8 mánaða undirbúningsvinna og finnst flestum nóg um. Í efstu deild karla hefur verið 10 liða deild síðan 1977 eða í 28 ár. Þær raddir verða sífellt háværari að nú þurfi bæði að fjölga liðum í efstu deildum knattspyrnunnar úr 10 í 12 og hefja Íslandsmótið fyrr. Á síðasta ársþingi KSÍ var samþykkt að setja á fót nefnd sem skyldi skoða hvað þyrfti að gera til þess að bæta ástand grasvalla svo hægt væri að lengja Íslandsmótið og þá helst að hefja það fyrr, eða mánaðamótin apríl/maí. Nefndin hefur aðallega skoðað þrjá þætti að sögn formanns hennar. Í fyrsta lagi að setja hitalagnir undir grasvellina, í öðru lagi að setja gervigras á alla aðalvelli og í þriðja lagi að hafa náttúrulegt gras með ísaumuðu gervigrasi á slitflötum. Þessar tillögur þarf að vega og meta og eflaust misjafnt hvað hentar hverju liði og reyndar eru víða náttúrulegir grasvellir tilbúnir til notkunar í lok apríl og þar þyrfti lítið að gera. Kostnaður við endurbætur er misjafn og fellur vitanlega á bæjarfélögin en sum þeirra hafa lagt í töluverðan kostnað til þess að bæta áhorfendaaðstöðu, samkvæmt kröfu KSÍ, auk þess að byggja glæsilegar knattspyrnuhallir víða um land. Þetta verður væntanlega helsta hitamálið á næsta ársþingi í febrúar 2006. Þar eiga aðildarfélögin í landinu síðasta orðið og ef þeim er virkilega alvara með því að fjölga í efstu deildum og lengja Íslandsmótið að þá ættu þau að láta slag standa og samþykkja slíkt á ársþinginu. Aðlögunartími gæti verið tvö ár og því gæti 12 liða deild hafist í lok apríl 2008. Framkvæmdum við uppbyggingu Laugardalsvallar á að ljúka haustið 2006. Auk þess að stækka stúkuna ætlar KSÍ að byggja yfir sig kennslu- og fræðslumiðstöð ásamt skrifstofuhúsnæði sem var löngu sprungið. Það ætti því að fara vel um Eggert og félaga næsta haust. Þar sem þessi stóri áfangi er í höfn ætti að gefast góður tími til þess að skoða innri málefni knattspyrnuhreyfingarinnar í kjölfarið. Lenging Íslandsmótsins og fjölgun liða er nauðsynlegt skref fyrir framþróun fótboltans á Íslandi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Sport Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Sjá meira