Sport

Ótrúlegur leikur í Laugardalnum

Grindvíkingar verða að sigra lokaleik sinn gegn Keflavík næsta laugardag í Landsbankadeild karla ætli þeir sér að eiga einhvern möguleika á að halda sér uppi. Í gær töpuðu þeir fyrir botnliði Þróttar 3-2 í hreint út sagt ótrúlegum leik. Þrátt fyrir markaleysi í fyrri hálfleik var mikið líf í leiknum. Markverðir beggja liða vörðu meistaralega og átti Fjalar Þorgeirsson, markvörður Þróttar, eitt af tilþrifum sumarsins þegar hann varði skot Pauls McShane í horn á undraverðan hátt.Fyrsta mark leiksins kom á 55. mínútu, þá skoraði Halldór Hilmisson með skoti langt utan teigs eftir mistök í vörn Suðurnesjamanna. Gindvíkingar jöfnuðu tuttugu mínútum síðar þegar Paul McShane skoraði úr þröngu færi. Á 82. mínútu komust Þróttarar aftur yfir. Markið var afar umdeilt en Páll Einarsson sem gerði markið lagði boltann greinilega fyrir sig með hendinni. Þegar 90 mínútur voru komnar á vallarklukkuna tók við ótrúlegur kafli. Grindavík jafnaði með marki Roberts Nistroj en aðeins mínútu síðar skoraði Ingvi Sveinsson sigurmark Þróttar. Svo þegar fjórar mínútur voru komnar yfir leiktímann átti Óli Stefán Flóventsson bakfallsspyrnu sem fór rétt yfir markið. Í liði heimamanna var Fjalar mjög góður í markinu og Halldór Hilmisson átti fínan dag á miðjunni. Jens Sævarsson var mjög góður í fyrri hálfleik en það dró af honum þegar líða tók á leikinn. Hjá gestunum var Boban Savic góður í markinu og þeir Óskar Örn Hauksson og Robert Nistroj síógnandi. Nú verða leikmenn Grindavíkur að spýta í lófana og sigra nágranna sína í Keflavík og treysta á að ÍBV og Fram vinni ekki sína leiki. Grindavík er eina liðið í sögu efstu deildar sem aldrei hefur fallið. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, hefur enn trú á að liðið haldi sér. "Það var alveg hræðilegt að fá þetta mark á sig í lokin því stig úr þessum leik hefði verið gott upp á framhaldið. En við í Grindavík ætlum okkur að halda okkur og vonandi vinna hin liðin ekki leiki sína."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×