Bestir þrátt fyrir tapið 12. september 2005 00:01
Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, var að sjálfsögðu ekki sáttur við það að tapa síðasta heimaleik sumarsins í gær. "Það hefði auðvitað verið gaman að enda þetta á sigri en við getum huggað okkur við það að við erum samt langbestir." Fylkismenn mættu ákveðnir til leiks í gær og ógnuðu marki FH í nokkur skipti á fyrstu mínútunum, án þess þó að skapa mikla hættu upp við mark Íslandsmeistarana. En eftir því sem leið á komst FH betur inn í leikinn. Ólafur Páll Snorrason var ógnandi á hægri kantinum auk þess sem Heimir Guðjónsson dreifði spilinu vel í sínum síðasta leik í Kaplakrika. Helgi Valur Daníelsson var áberandi í sóknarleik Fylkis og átti hann heiðurinn af besta færi Árbæjarliðsins í fyrri hálfleik en þá tókst honum að vinna boltann af Tommy Nielsen og sendi hann rakleiðis á Hauk Inga, sem var óvaldaður inn í vítateig, en hann missti klaufalega af boltanum og úr færinu varð því ekkert. En á 40.mínútu dró til tíðinda. Atli Viðar Björnsson vann Hrafnkel Helgason í kapphlaupi um boltann vinstra megin, óð inn í vítateiginn og þrumaði boltanum í þaknetið. Vel gert hjá Atla. Fylkismenn byrjuðu seinni hálfleikinn betur og voru sprækari á fyrstu mínútum hálfleiksins. Á 60.mínútu jafnaði Daninn Peter Tranberg metin með skoti af stuttu færi eftir góðan undirbúning Jóns Hermannssonar. Mikill ákafi færðist í leikmenn beggja liða við þetta. Viktor Bjarki Arnarsson var líflegur á hægri kantinum hjá Fylki og fór oft illa með Frey Bjarnason, bakvörð FH. FH sótti síðan í sig veðrið en tókst ekki að brjóta sterka vörn Fylkis á bak aftur. Á 88. mínútu tryggði svo Peter Tranberg Fylki sigurinn eftir klaufaleg mistök í vörn FH. Tranberg komst í kjölfarið einn í gegnum vörnina og nýtti færið vel. Staðan því orðin 2-1 Fylki í vil. Jón Þorgrímur Stefánsson var svo rekinn af velli fyrir að tækla Bjarna Þórða Halldórsson, markvörð Fylkis illa. Valur Fannar Gíslason, fyrirliði Fylkis, var ánægður með sigurinn. "Við spiluðum vel í dag og áttum þetta skilið. Við ætluðum okkur ekki að treysta á neitt annað en okkur sjálfa og þessi sigur var einstaklega góður hjá okkur."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Sport Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Sjá meira