Norski verkamannaflokkurinn í sókn 22. ágúst 2005 00:01
Stjórnarskipti eru líkleg eftir þingkosningar sem fara fram í Noregi eftir mánuð, samkvæmt könnunum. Núverandi forsætisráðherra verður ekki í framboði en vonast samt til að verða áfram í embætti. Stuðningur við norska Verkamannaflokkinn hefur stóraukist undanfarið og er nú meiri en undanfarin fimm ár. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem bendir til þess að Verkamannaflokkurinn gæti borið sigur út bítum í þingkosningum þann tólfta september næstkomandi. Flokkurinn myndi ásamt tveimur smáflokkum sem þykja líklegir til að mynda saman stjórn, fá níutíu og sex sæti af hundrað sextíu og níu samkvæmt könnuninni. Stjórnarflokkarnir fengju hins vegar aðeins sjötíu og eitt sæti. Jens Stoltenberg, formaður Verkamannaflokksins, hefur gagnrýnt Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra, harðlega, fyrir að fara illa með olíuauð Noregs og nota hann til að færa þeim efnameiri skattalækkanir í stað þess að gera nauðsynlegar umbætur í menntamálum, atvinnumálum og umönnun eldri borgara. Það eru þeir málaflokkar sem kjósendur leggja mesta áherslu á, samkvæmt könnunum. Persónufylgi Stoltenbergs er einnig mest: þrjátíu og átta prósent aðspurðra eru á því að hann yrði besti forsætisráðherrann að kosningum loknum. Kjell Magne Bondevik stefnir þrátt fyrir þetta ótrauður að því að sitja áfram sem forsætisráðherra að loknum kosningum, þó að hann verði ekki í framboði. Bondevik hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram í næstu kosningum en fordæmi eru fyrir því í norskri stjórnmálasögu að forsætisráðherra sé ekki þingmaður og Bondevik gerir sér vonir um að fylgja þeirri hefð.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Sjá meira