Mun stærra hlaup en síðast 1. ágúst 2005 00:01
Skaftárhlaup náði hámarki í gær og hafði vatnsrennslið mælst mest 620 rúmmetrar á sekúndu þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld. Það er mun meira en í síðasta hlaupi í ánni sem varð árið 2003. Vöxturinn var hægur og bítandi en þó svo mikill að blaðamaður sem var í Skaftárdal um miðjan dag í gær sá greinileg merki þess að hlaupið færi vaxandi. Oddsteinn Kristjánsson bóndi, sem fæddur er og bjó í Skaftárdal þar til ársins 1973 en býr nú á Hvammi í Skaftártungu, segist sjá mun á Skaftárhlaupum eftir að gaus við Grímsvötn. "Áður fyrr kom hún allt í einu með mun meiri gassagangi, nú fer hún sér hægar en hlaupin standa frekar lengur yfir," segir Oddsteinn. Hlaupið hafði ekki náð hámarki þegar blaðamaður tók hús á Oddsteini en þó var áin farin að flæða að túnfætinum. Bóndinn að Hvammi er þó uppalinn við bakka Skaftár og lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna þó að Skaftá gerist ágeng. "Það væri öllu verra ef Katla færi að láta á sér kræla, það fer nú að koma tími á það en hlaupin gera engum mein. Ekki nema það að þau skilja eftir sig sand úti um allar jarðir, það er allt og sumt." Sverrir Óskar Elefsen hjá Vatnamælingum Orkustofnunar segir fátt hægt að segja um framvindu hlaupsins en taldi þó líklegt í gær að hlaupið myndi réna um kvöldið. Þó yrði vatnsrennslið enn mikið í dag og næstu daga. Skaftárhlaup á upptök sín á svæði á Vatnajökli en þar er jarðhiti og því myndast þar svokallaðir katlar. Þeir fyllast af jökulvatni uns undan lætur og hlaup hefst. Katlarnir eru tveir en þar sem ekki hafði verið hægt að fljúga yfir jökulinn í gærkvöld var ekki vitað úr hvorum katlinum hlaupið á upptök sín.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Fleiri fréttir Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Sjá meira