Valur - Fylkir endar með jafntefli 26. júlí 2005 00:01
Lokaleikur 12.umferðar Landsbankadeildar karla, leikur Vals og Fylkis endar pottþétt með jafntefli og því verða FH-ingar komnir með 8 stiga forskot og geta fagnað titilinum á Þjóðhátíð í Eyjum. Leikmenn beggja liða verða með hugann við undanúrslitaleik félaganna í bikarkeppninni þann 4. ágúst. Leikurinn fer annað hvort 0-0 eða 1-1. Valsmenn hafa verið afar sannfærandi á heimavelli í sumar, unnið Gindavík 3-1, Skagamenn 2-0, Framara 3-0, KR-inga 3-0 og þá sigraði liðið 1.deildarlið Hauka (litla séra Friðrik) létt í bikarnum 5-1 á Hlíðarenda. Hins vegar hafa Valsmenn beðið ósigur í einum leik á heimavelli en það var gegn Íslandsmeisturum FH, í leik sem tapaðist 1-0 og voru séra Friðriks drengir heppnir að tapa ekki stærra fyrir Hafnfiðingunum. Fylkismenn eru hins vegar frábærir á útivelli. Fylkismenn hafa farið til Vestmannaeyja, Siglufjörð(í bikar), Kópavogsvöll (í bikar gegn HK) á Laugardalsvöll gegn Þrótti, til Grindavíkur, uppá Skaga og á KR völl og alls staðar unnið. Eina liðið sem hefur náð stigi gegn Fylki á heimavelli sínum er Keflavík það sem af er móti. Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkis, þjálfaði Valsmenn síðast þegar þeir voru í efstu deild en féll með liðið. Þorlákur var afar vinsæll á Hlíðarenda en viðskilnaður hans við félagið var leiðinlegur og eflaust hlakkar í Þorláki að gera út um vonir Valsmanna á Íslandsmeistaratitlinum og bikarmeistaratiltilinum á einungis átta dögum. Gáfnaljósið heldur að Þorláki og félögum takist að færa FH-ingum átta stiga forystu fyrir Verslunarmannahelgina og þar með Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:00. Arnar Björnsson lýsir leiknum. Honum lyktar með jafntefli annaðhvort 0-0 eða 1-1 og eigum við ekki að segja að Gummi Ben skori mark Valsmanna og Guðni Rúnar Helgason geri mark Fylkis. Vanti þig auðveldan pening fyrir Verslunarmannahelgina, settu þá x á þennan leik því stuðullinn er sléttur þrír. Byrjunarliðið Vals (4-4-2) Kjartan; Steinþór, Grétar, Atli, Bjarni Ólafur; Sigþór, Sigurbjörn, Stefán, Baldur ; Gummi Ben, Matthías. Byrjunarlið Fylkis; (4-3-3) Bjarni Þórður, Kristján, Valur Fannar, Ragnar, Gunnar Þór; Hrafnkell, Helgi Valur, Guðni Rúnar; Viktor Bjarki, Björgólfur, Christian Christiansen. Gáfnaljósið kveður....
Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira