Sport

Magnús rekinn frá KR

Magnúsi Gylfasyni var í gær sagt upp störfum sem þjálfari meistaraflokks KR. Magnús tók við liðinu í nóvember á síðasta ári og gerði þá þriggja ára samning við félagið. KR hefur gengið illa það sem af er sumri og er sem stendur í sjötta sæti í deildinni með þrettán stig eftir tólf leiki. Sigursteinn Gíslason hefur verið ráðinn þjálfari í stað Magnúsar og verður Einar Þór Daníelsson, fyrrverandi leikmaður KR, aðstoðarmaður hans. Þeir léku báðir með KR á sínum tíma og hafa þjálfað annan flokk félagsins með góðum árangri í sumar. "Ég og Einar Þór þekkjumst vel og höfum starfað saman að þjálfun hjá öðrum flokki KR. Við spiluðum saman hjá KR og unnum nokkra titla með félaginu. Við vonumst auðvitað til þess að geta fengið liðið til þess að spila betur en það hefur gert. Það er líka kostur að við þekkjum ágætlega til eiginlega allra leikmannanna." Einar Þór Daníelsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari KR, segir erfitt að taka við KR í þessari aðstöðu en jafnframt spennandi. "Það er alltaf erfitt að reka þjálfara á miðju tímabili. Þar að auki er Magnús vinur minn þannig að þetta er sárt að því leytinu til. En mikil áskorun fyrir mig." Aðspurður um framhaldið sagði hann að breytinga væri að vænta. "Við eigum alfarið eftir ráðfæra okkur um framhaldið, ég og Sigursteinn. En það verða breytingar, það er alveg öruggt." Sigursteinn segist ekki hafa getað gert annað en taka við liðinu. "Það kom aldrei neitt annað til greina en taka við þessu starfi þegar það bauðst. Starfið er mikil áskorun fyrir mig og viðurkenning á því starfi sem ég hef verið að vinna að undanförnu, ásamt Einari Þór. Þetta kom óvænt upp. Ég heyrði af þessu eftir leikinn á móti Keflavík en það var ekkert staðfest við mig. Svo var ég beðinn um að taka þetta að mér daginn eftir leikinn og ég ákvað slá til. Ég hef ekki skrifað undir neinn samning enn þá en ég ætla að einbeita mér að því að klára þessa sex leiki sem eftir eru af deildarkeppninni með sæmd. Það býr mikið í liðinu og mitt verkefni að ná meiru út úr því en náðst hefur hingað til." Kristján Finnbogason, markvörður og fyrirliði KR, frétti af þjálfaraskiptunum fyrstur leikmanna. "Ég var látinn vita af þessu eftir fund stjórnar KR með Magnúsi. Ég ræddi þetta aðeins við hann, en það eina sem hægt er að gera núna er að horfa fram á veginn. Við erum í botnbaráttu eftir fyrstu tólf leikina og getum aðeins bætt spilamennsku okkar. Þetta er ágætis tækifæri fyrir okkur til þess að byrja upp á nýtt." Ágúst Þór Gylfason hefur skorað í síðustu tveimur leikjum KR sem engu síður hafa tapast. Fréttirnar komu honum, sem og flestum öðrum leikmönnum liðsins, á óvart. "Ég var persónulega sáttur við Magga enda er hann frábær þjálfari sem hefur gert mikið fyrir mig sem leikmann. En við verðum líka að hafa trú á Sigursteini og Einari enda góðir menn og miklir KR-ingar. Það er gott að fá slíka menn inn í stað þess að ráða einhvern óþekktan til félagsins."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×