Innlent

Mótmælendur lausir

Þrettán mótmælendur voru handteknir og færðir til skýrslutöku á lögreglustöðinni við Kárahnjúka fyrr í dag. Þeim hefur öllum verið sleppt.  Kalt var í veðri og blautt og létu sumir undan veðrinu og gengu á brott um hálftíma áður en lögreglan stöðvaði mótmælin. Þegar lögreglan hafði leyst fólkið sem hafði hlekkjað sig við vinnuvélarnar var því beint upp í rútu sem fór með það á lögreglustöðina á svæðinu. Vinna lá niðri við stíflusvæði virkjunnar þegar mótmælin áttu sér stað en bílum var lagt þvert yfir veginn að Steypustöðinni til að vörubílar kæmust hvorki að né frá stíflusvæðinu. Vinna við gangagerðina hélt þó áfram, enda beindust aðgerðirnar aðeins að stíflusvæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×