Mótmælin hefjast fyrir alvöru 28. júní 2005 00:01
Mótmælin við Kárahnjúka virðast loksins vera að hefjast fyrir alvöru og síðasta leyfið fyrir tjaldbúðum ætti að liggja fyrir síðar í dag. Einn skipuleggjenda mótmælanna, Birgitta Jónsdóttir, sem er ekki enn farin austur, segist búast við tuttugu manna hópi á svæðið í dag og á morgun. Þegar síðast fréttist voru mótmælin enn ekki farin af stað fyrir alvöru og aðeins tvö tjöld uppi. Birgitta segist fastlega gera ráð fyrir að síðasta leyfið fyrir tjaldbúðunum fáist frá landeigendum þegar líða tekur á daginn. Mótmælendurnir hafa þegar fengið leyfi fyrir búðunum frá Egilstaðahéraði og í gær fengu þeir leyfi fyrir að setja upp útikamar við svæðið. En þó að kamarinn sé risinn, segir Birgitta að þeir sem ætli sér að taka þátt í mótmælunum ættu ekki að búast við að fá þjónustu, enda snúist mótmælin ekki um þægindi, heldur verndun landsins sem mótmælendurnir elski. Birgitta segist eiga von á því að mótmælin muni næstu daga litast mjög af listrænum tilburðum, enda sé von á mörgum listamönnum á svæðið, bæði tónlistar og myndlistarfólki. Þar sem ekki sé um eiginlega hátíð að ræða, megi hins vegar ekki auglýsa atburðina og því verði þeir sem hafi áhuga einfaldlega að mæta á svæðið og sjá hvað verður í boði. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum er hópur mótmælenda enn mjög fámennur og hefur ekki stækkað undanfarinn sólarhring. Lögreglan segir mótmælendur hafa haft hægt um sig hingað til og allt hafi gengið vel fyrir sig.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Innlent Málverk stolið af nasistum fannst í argentínskri fasteignaauglýsingu Erlent Kallar bandarískan erindreka á teppið vegna Grænlandsmála Erlent Fundu steinaldarbyggð í Árósaflóa sem fór undir sjó eftir ísöld Erlent Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Innlent 50 prósenta tollar á indverskar vörur taka gildi í Bandaríkjunum Erlent Lögfesta bann gegn símanotkun í skólum Erlent Fleiri fréttir Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Fjárhús varð öldugangi að bráð Sveinn nýr formaður stjórnar Landspítalans Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Fresta byggingu annarrar heilsugæslu um fimm ár hið minnsta Afsökunarbeiðni Sigríðar Bjarkar skipti sköpum Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum „Stórsigur fyrir réttlæti“ Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi Mannekla hjá lögreglu engin afsökun fyrir fyrningu mála Skoða hvort hægt sé að beita Ísrael refsiaðgerðum Gufunesmálið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Sjálfstæðisflokkur stærstur í borginni Sjá meira